153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:39]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ekki er skilgreint hérna hvaða góðgerðarfélög þetta eru. Geta þetta verið kvenfélög víða um land? Hvernig á að sækja um þessa aðstoð ef þessi peningaupphæð verður samþykkt? Ég held að þetta sé algjörlega vanhugsað og bara skilgreint til þess að búa til enn eitt plakatið með góða og vonda fólkinu á samfélagsmiðlum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)