153. löggjafarþing — 47. fundur, 12. des. 2022.
fjárlög 2023.
1. mál
Frú forseti. Ég kem hingað upp einfaldlega til að taka undir með hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur. Ég get ímyndað mér að það sé erfitt að segja nei við þessari tillögu en augljóslega er þessi tillaga til komin vegna þess að ekki eiga allir mat fyrir jólin. Það er ekki vegna þess að við samþykkjum ekki nógu margar matarkörfur hérna fyrir jólin í þessu þingi. Það er vegna þess að fólk er kerfisbundið sett í þá stöðu. Það er það sem við eigum að ræða og það sem við eigum að laga. Ég segi já.