153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:47]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil nýta tækifærið í tengslum við þessa atkvæðagreiðslu að taka upp fréttir af blaðamannafundi hæstv. ríkisstjórnar í dag um fjölgun íbúða í aðgerðapakkanum sem talað er um. Staðreynd málsins er þessi: Síðustu þrjú ár hafa verið samþykktar fjárheimildir fyrir uppbyggingu óhagnaðardrifins húsnæðis upp á 3,7 milljarða kr. Fjárheimildir fyrir næsta ár eru 1,7 milljarðar kr. Verið er að flytja til vannýtt fé milli ára en það er ekki ný fjárheimild inni í þessu. Að sama skapi var einnig boðað hér með ítrekuðum blaðamannafundum og glærukynningum í vor og haust að það ætti að fara að byggja 1.200 félagslegar eða óhagnaðardrifnar íbúðir á ári. Nú stefnir í að þetta verði 400–500 íbúðir á næsta ári. Það er farið mjög frjálslega með sannleikann í framsetningu þessa máls og Samfylkingin er hér að leggja til að við setjum inn þær fjárhæðir sem voru þó boðaðar í fjárveitingum eða glærukynningum hæstv. ríkisstjórnar í vor og við förum í alvöruuppbyggingu á óhagnaðardrifnu húsnæði í landinu.