153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:50]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Fyrr í dag voru kynntar tillögur um kjarasamningadót og þar var talað um 35.000 íbúðir sem sveitarfélögin hafa þegar gert ráð fyrir í áætlunum sínum þannig að það er engar nýjar tölur þar að sjá. Þessi framlög munu u.þ.b. duga fyrir því, 3.500 íbúðum á ári. En það er ekki nóg, það vantar upp í gatið sem er óuppfyllt íbúðaþörf. Það gat stækkaði núna um síðustu áramót þegar mannfjöldaspá Þjóðskrár var uppfærð því það var vanspáð um mannfjöldaþróun á Íslandi þannig að sú íbúðaþörf sem var áður gert ráð fyrir, árið 2019, var um 4.000 en er núna um 5.000 íbúðir. Það vantar upp í þetta, þetta gerir ekki ráð fyrir því að stoppa í það gat.