fjárlög 2023.
Forseti. Það er víst til lítils að óska eftir stuðningi Alþingis við þessa tillögu í ljósi þess að Alþingi hafnaði tillögunum sem liggja þessari tillögu til grundvallar, þ.e. tillögu Viðreisnar um aðhald í ríkisfjármálum og aukna tekjuöflun. Mér finnst samt ástæða til að koma hingað upp og biðja þingmenn um að virða fyrir sér tölurnar sem eru þarna á blaðinu, þessar 650 milljónir sem þarna hefðu sparast með því að greiða niður skuldir ríkisins um 20 milljarða, og minna sjálfa sig á hvað er auðvelt að eyða peningum og erfitt að spara þá. Þessar 650 milljónir hefðu getað verið til ráðstöfunar á hverju ári héðan í frá, á meðan Ísland stendur, en verða ekki, vegna skuldasöfnunar hins opinbera.