fjárlög 2023.
Frú forseti. Það væri auðvitað mjög skammarlegt fyrir ríka þjóð eins og Ísland ef við værum að klípa af þróunarsamvinnu vegna nauðsynlegrar hjálpar við úkraínsku þjóðina. En það breytir því ekki og er óháð því að við í Samfylkingunni – jafnaðarflokki Íslands höfum í mörg ár kallað eftir meiri metnaði í þróunarsamvinnu og að við hröðuðum skrefum í þá átt að ná samþykktum markmiðum Sameinuðu þjóðanna sem við höfum undirgengist um að verja 0,7% af þjóðartekjum til þróunarsamvinnu. Þannig að burt séð frá öllum útreikningum er auðvelt að segja já við þessari tillögu.