fjárlög 2023.
Frú forseti. Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu má ekki verða til þess að dregið sé úr framlögum til þróunarsamvinnu við önnur lönd, hvort sem það er tvíhliða samstarf eða fjölhliða samstarf eða framlög okkar til mikilvægra stofnana Sameinuðu þjóðanna. Ég vil koma hér upp og ítreka það sem við hv. þingmenn sem sitjum í þróunarsamvinnunefnd höfum heyrt þar, þar sem frjáls félagasamtök tala einum rómi um það hvernig staðan í heiminum er í dag. Við erum ekki bara að tala um stríð og hungursneyð og það er auðvitað ekkert bara, við erum að tala um allar afleiðingar hamfarahlýnunar sem hægt er að hugsa sér. Þá ætla ég að halda því hér fram blákalt að aukning á framlögum til þróunarsamvinnu sé ekki bara framtíðarmál fyrir okkur, mannúðarmál, eðlileg viðbrögð við neyðarástandi, heldur einnig þjóðaröryggismál. Við hreinlega verðum að taka okkur á í þessum málaflokki. Ég segi já.