153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:01]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Frú forseti. Ég ætla bara að taka undir þetta síðasta hjá hv. þingmanni, ég held að við eigum að sýna metnað okkar í því að færa þetta nær, hægt og rólega, að þeim markmiðum sem ég held að við viljum öll ná því að neyðin verður áfram mjög mikil mjög víða um heim. Núna er einmitt verið að benda okkur mikið á Jemen þar sem ástandið er algjörlega ömurlegt, gleymist kannski þegar við og þjóðir heims beina athygli sinni fyrst og fremst að Úkraínu. Ég vildi bara koma hingað upp og segja varðandi tillöguna sem hér var felld áðan að útreikningarnir eru kannski ekki alveg jafn einfaldir og við myndum vilja halda. Þetta eru ekki bara vergar þjóðartekjur og svo prósentan þar ofan á, þetta er samsett. Við erum að auka framlögin um 1,5 milljarða, sérstaklega vegna Úkraínu enda mikilvægt. Við þurfum að gera það sökum þess að við erum að taka á móti talsvert mörgu fólki sem við viljum auðvitað hlúa vel að.