fjárlög 2023.
Forseti. Enn og aftur er ég kominn hingað til að vera málsvari aðhalds í ríkisrekstri. Kannski finnst ykkur ég hjartalaus að mæta hér einungis upp undir þeim liðum þegar hér er töluverð keppni um að koma á framfæri alls kyns góðum málefnum sem hægt væri að ráðstafa peningum í. Tilfellið er þetta hér: Í hvert skipti sem þið samþykkið útgjöld sem ekki rúmast innan tekjuramma ríkisins eruð þið að skerða möguleika framtíðarinnar á að styðja góð málefni, taka það af ykkur sjálfum þegar þið verðið orðin ellilífeyrisþegar, af börnunum ykkar þegar þau þurfa á stuðningi að halda. Málsvarar aðhalds eru nauðsynlegir á Alþingi.