153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:06]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum að greiða atkvæði um það hvort Alþingi muni veita hæstv. fjármálaráðherra heimild til að selja eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka, að veita fjármálaráðherra heimild til að selja banka. Það er hann sem selur bankann. Og hvað þýðir það? Jú, það þýðir að hæstv. fjármálaráðherra er bundinn af vanhæfisreglum stjórnsýslulaga þegar hann selur bankann. Hann má t.d. ekki selja föður sínum banka. (Gripið fram í.) Þá er hann að brjóta stjórnsýslulög. Söluaðilar mega ekki selja sjálfum sér bankann. Þá eru þeir að brjóta stjórnsýslulögin. Annað sem er enn þá alvarlegra er að þegar selt er lögaðila verður seljandinn að vita hver raunverulegur eigandi lögaðilans er, vita hver raunverulegur eigandi er. Það vissum við ekki þegar Íslandsbanki var seldur og það er brot á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Það er mjög alvarlegt brot. Ísland lenti á svörtum lista af því að við höfðum þetta ákvæði ekki rétt. (Gripið fram í.) Það er það sem á að gera, það ber að kanna það í hvert skipti. (Fjmrh.: … mæla fyrir tillögunni?)