153. löggjafarþing — 47. fundur, 12. des. 2022.
fjárlög 2023.
1. mál
Virðulegur forseti. Fjármálaráðherra er ekki treystandi til að selja áframhaldandi hluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum og þessari ríkisstjórn ekki heldur. Það er augljóst, m.a. af því sem hér er komið fram en einnig hvernig var staðið að síðasta hluta söluferlisins og því er auðvitað ekki rétt að halda áfram að gefa fjármálaráðherra leyfi til að selja hluti í bönkunum.