fjárlög 2023.
Forseti. Ég ætla að prófa smá fótboltalíkingu svo að sumir fatti kannski um hvað ég er að tala hérna. Í leik Englendinga og Frakka um daginn voru tvö víti dæmd á Frakka. Fyrra vítið var mjög augljóslega víti og enginn Frakki mótmælti því einu sinni. Seinna vítið aftur á móti, þá setti varnarmaður Frakka undir sig haus og negldi sóknarmann Englendinga í öxlina og Frakkarnir æptu: Hann fór í öxlina, hann fór í öxlina. En augljóslega var þetta aðeins meira en það að fara bara í öxlina. Við erum að glíma við svoleiðis mál hérna þar sem liðið sem fékk dæmt á sig víti mótmælir því sem ætti tvímælalaust að vera víti og var víti. Traustið hérna er ekki til staðar. Við getum ekki trúað þeim sem brutu af sér. Við verðum að trúa öllum öðrum, helst hlutlausum aðilum sem við erum að reyna að kalla til til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. (Forseti hringir.) Ég er ekki mjög sannfærður um að fjármálaráðherra eigi að fá að halda áfram sölunni, (Forseti hringir.) sérstaklega þegar þau ætla að skrifa einhverjar nýjar reglur um það hvernig þau ætla síðan að fá að halda áfram sölunni sjálf. (Gripið fram í.) Ég ætla ekki að kvitta undir þetta.