fjárlög 2023.
Forseti. Heimildargreinin, 6. gr., snýst um varnarbúnað fyrir starfsemi lögreglunnar. Ég er á móti því að lögreglumenn fái heimild til að kaupa þennan búnað af því að ég tel að þetta þýði í rauninni árásarbúnaður í varúðarskyni. Ef þetta þýðir í raun og veru að þetta sé varnarbúnaður þá eru það ekki rafbyssur eða neitt annað slíkt. Það er árásarbúnaður, bara til að hafa það alveg á hreinu. Lögreglan má nota peninginn sem hún fékk í fjárheimild hérna fyrr í atkvæðagreiðslunni, tvímælalaust, en í eitthvað annað en þetta.