fjárlög 2023.
Frú forseti. Í frumvarpinu er talað um varnarbúnað fyrir lögreglu. Við vitum mætavel að besti varnarbúnaðurinn fyrir lögreglu er aukið lögreglulið og betri þjálfun og að við ráðumst að rótum vandans sem veldur því að lögreglumenn lenda í hættu í sínu starfi. Við erum öll sammála um að það er algjörlega ólíðandi ástand. Þetta er ekki varnarbúnaður líkt og hér var nefnt. Við erum að tala um árásarbúnað og ekkert annað. Við erum að tala um búnað sem lögregla getur notað til þess að beita borgarana ofbeldi. Ég segi nei við þessu. Þetta er ekki rétta leiðin, þetta er úrræðaleysi. Þetta er ekki úrræði. Við eigum að vera að ráðast að rótum vandans, höfum tæki til þess nú þegar. Þetta er ekki rétta leiðin. Ofbeldi getur aldrei leitt af sér neitt annað en meira ofbeldi.