153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:19]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla að fá að taka undir með þingmönnum sem hafa komið hingað upp á undan mér, og þá sérstaklega hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, að það er mikilvægt að ráðast að rót vandans en ekki að vopnavæða lögregluna. Svo velti ég líka fyrir mér hvert endamarkmiðið er. Ætlum við bara að halda áfram að dæla fjármunum í varnarbúnað lögreglunnar í fjárlögum hvers árs eftir að vopnakapphlaupið byrjar, af því að við vitum alveg til hvers þetta leiðir? Þannig að ég bið ríkisstjórnina um að endurskoða þetta og endurskoða núverandi nálgun á ofbeldi í samfélaginu af því að þetta er ekki svarið.