fjárlög 2023.
Forseti. Um daginn afgreiddi þingflokkur Vinstri grænna frumvarp til lögreglulaga með því sem þau sögðu vera sögulega langan fyrirvara þar sem því var m.a. beint til allsherjar- og menntamálanefndar að skoða hvort dómsmálaráðherra bæri að hafa samráð við Alþingi áður en hann setur reglur um aukinn vopnaburð lögreglu. Hér erum við að greiða atkvæði um fjárheimild til að auka vopnaburð lögreglu. Þessi vinna er í gangi í ráðuneytinu í dag. Það er ekkert sem allsherjar- og menntamálanefnd getur gripið í taumana með í dauðans ofboði. Þannig að ég velti fyrir mér hvort þingflokkur Vinstri grænna vilji kannski beina þessum sögulega langa fyrirvara aðeins inn á við, ekki styðja aukinn vígbúnað lögreglu með atkvæði sínu hér í dag, nema að fyrirvarar séu kannski eins og okkur grunar nú yfirleitt; sýndarmennska í baklandi án þess að nokkuð fylgi á bak við.