almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Þarna er ég með breytingartillögu í sambandi við frítekjumörkin, að þau verði uppreiknuð samkvæmt launavísitölu frá 2009 og hækki þar af leiðandi ekki upp í 2,4 milljónir heldur 3 milljónir á ári og 300.000 kr. Einnig er ég með breytingartillögu um að framfærsluuppbótin skerði ekki. Við erum að tala um þúsundir öryrkja sem gætu hugsað sér að fara að vinna ef þeir fengju tækifæri til þess. Þetta er enginn kostnaður fyrir ríkið vegna þess að ef fólk vinnur þá borgar það útsvar og jafnvel tekjuskatt þannig að það ætti að vera hvati og ætti að vera sjálfsagður hlutur að samþykkja það að leyfa öllum sem vilja og geta farið út á vinnumarkaðinn að vinna en ekki að letja fólk til þess eða að setja hindranir þannig að fólk þori ekki að fara út vegna þess að það fær ekkert fyrir sína vinnu.