félagsleg aðstoð.
Virðulegur forseti. Hérna erum við að lengja endurhæfingartímabilið úr þremur árum í fimm ár. Ég styð þetta vegna þess að ég tel að það sé þörf á þessu. En því miður erum við að byrja á röngum enda. Við ættum að vera búin að sjá til þess fyrir það fólk sem er þegar í þessu kerfi að það sé auðveldlega hægt að komast af endurhæfingarlífeyri inn á örorku. Það er því miður ekki svo einfalt. Annað sem er líka erfitt er að komast bara inn á endurhæfingarlífeyrinn yfir höfuð. Þar vantar miðstöð endurhæfingar, vantar aðstöðu fyrir fólk þar sem það getur komið á einn stað og fengið alla þjónustu. Við erum að senda fólk út um allan bæ. Í fyrsta lagi þarftu að finna lækna, það tekur tvo, þrjá mánuði. Síðan þarftu að fara að finna alla pappíra og það getur tekið annan eins tíma og síðan þarf að fara í umsóknarferlið sem tekur tvo, þrjá mánuði. Þetta er allt of flókið kerfi. Við verðum að einfalda það.