ríkisendurskoðandi og endurskoðun ríkisreikninga.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Fyrir stuttu síðan varð forseti Alþingis þess áskynja að nauðsynlegt væri að gera breytingu á lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga í þeim tilgangi að samræma löggjöfina eða lagaákvæðin breyttri flokkun ríkisaðila til samræmis við endurskoðun Hagstofu Íslands á flokkun tiltekinna stofnanaeininga í þjóðhagsreikningum. Í þessu frumvarpi er um að ræða aðlögun að breytingu sem átti sér stað snemma á þessu ári eða í byrjun þessa árs sem fól í sér breytt heiti á flokkun ríkisaðila. Hingað til hafa ríkisaðilar verið flokkaðir eftir bókstöfum í A-hluta, B-hluta og C-hluta, en til að gera málið einfaldara þá má lýsa þessu svo að sú breyting sem tók gildi í byrjun árs felur það í sér að það sem áður tilheyrði A-hluta tilheyrir núna því sem kallað er A1, það sem tilheyrði B-hluta kallast nú A2 og það sem áður var C-hluti heitir nú A3.
Svo málið sé skýrt örlítið nánar þá felur þetta í sér að Ríkisendurskoðun er heimilt að rukka ríkisaðila áður í B- og C-flokki fyrir endurskoðunarvinnu eða þá vinnu sem felst í endurskoðun ársreiknings en ekki þá aðila sem tilheyra A-flokki. Með þessari breytingu á flokkun ríkisaðila, ef ekkert væri aðhafst, þá fellur niður þessi heimild til að senda þeim ríkisaðilum sem áður tilheyrðu B- og C-hluta reikning fyrir endurskoðunarvinnuna. Breytingin sem felst í þessu frumvarpi leiðir einfaldlega til þess að hægt verður að rukka þá ríkisaðila áfram fyrir endurskoðunarvinnu af hálfu Ríkisendurskoðunar sem heimilt hefur verið til þessa.
Ég held að það sé ástæðulaust að fara ítarlegar út í ákvæði þessa frumvarps, þau skýra sig að öðru leyti sjálf. Ég óska eftir því að þingið aðstoði við að koma á þessari breytingu og gera þetta mál að lögum fyrir áramót þannig að ekki verði truflun á þessari starfsemi Ríkisendurskoðunar.