153. löggjafarþing — 48. fundur,  13. des. 2022.

almannatryggingar.

568. mál
[16:35]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það styttist nú í að við tökum 3. umr. fjárlaga þar sem við tökum efnislega umræðu um þessi mál. Það sem ég vildi koma upp hér áðan um og leiðrétta er að hæstv. forsætisráðherra sagði í sínu máli — það kom fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu — á fundi ríkisstjórnarmeirihlutans í gær þegar verið var að tala um fjárhæðir að þær væru að óbreyttu kerfi og það er mikilvægt að halda því til haga. Sannarlega verður fjárhæðin ríflega 14,5 milljarðar á næsta ári og 16 milljarðar árið 2024. Að óbreyttu kerfi hefðu það orðið tæpir 11 milljarðar á næsta ári.

Ég tek undir að það hefði mátt koma breytingartillaga inn fyrir 2. umr. fjárlaga þar sem fyrirséð var að upphæðin yrði ekki hærri að óbreyttu kerfi. Það hefði verið hreinlegra að mínu mati. En engu að síður þegar við erum að vitna hér til orða fólks þá verðum við að hafa þau rétt og 5 milljarðar frá óbreyttu kerfi er rétt.