almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Það gladdi mig mjög að sjá hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur koma hingað upp af því að ég ætla einmitt að hvetja stjórnarliða til að koma hingað og taka efnislega umræðu um þetta mál. (BJG: … kannski fara í málið sjálft. ) — Já. (Gripið fram í.) Ég ætla að vísa til þess þegar við ræddum fjárlögin í síðustu viku í 2. umr. og við vorum að því langt fram á nótt. Við hvöttum stjórnarliða og meðlimi fjárlaganefndar til að koma hingað og taka þátt í þessari umræðu með okkur en þeir urðu því miður ekki við þeirri beiðni okkar. En það gleður mig mjög mikið að sjá að það að gagnrýna forsætisráðherra eða tala um orð forsætisráðherra fær stjórnarliða til að koma upp í pontu og tala efnislega um þessi mál og ég hlakka til að fara (Gripið fram í.) í 3. umr. fjárlaga.