153. löggjafarþing — 48. fundur,  13. des. 2022.

almannatryggingar.

568. mál
[16:43]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Í fjárlögum fyrir árið í ár, fyrir árið 2022, var samþykkt á Alþingi að verja 13.965 milljónum kr. í barnabætur. Nákvæmlega sama upphæð var í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2023 og var einnig samþykkt hér í þessum sal. Það hlýtur því a.m.k. að kallast blekkingaleikur þegar ríkisstjórnin, hæstv. forsætisráðherra og fleiri hæstv. ráðherrar segja: Við ætlum núna að hækka barnabætur um 5 milljarða á tveimur árum, að fara sem sagt úr 13.965 milljónum í 16 milljarða. Ég veit ekki með þig, forseti, en með einföldum frádrætti hljótum við að sjá að það eru ekki 5 milljarðar. Það eru 2 milljarðar. (Forseti hringir.) Þetta er blekkingaleikur. Við létum blekkjast og kölluðum tillögurnar okkar um að hækka barnabætur um 3 milljarða strax á næsta ári til 3. umr. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)