almannatryggingar.
Herra forseti. Ég get ekki orða bundist yfir orðum hv. formanns fjárlaganefndar. Mér finnst varnir stjórnarliða aumar þegar þeir eru að reyna að verja þann blekkingarleik sem ríkisstjórnin og stjórnarliðar halda uppi. Það að við í Samfylkingunni höfðum ætlað að bæta við 3 milljörðum kr. inn í barnabótakerfið til að fleiri fjölskyldur fengju barnabætur, og þar eru fleiri krónur einnig — ef þingið hefði samþykkt þær tillögur, og kannski fá þau tækifæri til þess við 3. umr., þá hefðum við vitaskuld komið með breytingartillögu í bandormi til að breyta skattalögum til þess að breyta viðmiðum, auðvitað. Annars hefðu þessir 3 milljarðar ekki getað farið til fleiri barnafjölskyldna. Mér finnst — nei, nú ætla ég að passa mig, forseti, að segja ekki eitthvað sem kallar á áminningu.