Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

varamenn taka þingsæti.

[10:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um að Jódís Skúladóttir geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Bryndís Haraldsdóttir verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi, Kári Gautason, en 1. varamaður hefur boðað forföll, og 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, Arnar Þór Jónsson.

Þeir hafa báðir áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa að nýju.