Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

úrvinnslugjald.

572. mál
[12:20]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, hann er kannski kominn aðeins út fyrir frumvarpið. Þetta er einfaldlega flókin tæknileg vinna og miklar tollskrárbreytingar tóku gildi um áramótin og því tók sú vinna tíma og öll númer eru unnin af Skattinum og úrvinnslusjóði. Ef ráðherra í ráðuneyti umhverfis- og loftslagsmála myndi fara inn í það þá held ég að við værum að fara á einhvern stað sem ég myndi gera ráð fyrir að við þyrftum að fá lagabreytingar til vegna þess að við erum með þetta fyrirkomulag, sem ekki bara Ríkisendurskoðun er búin að koma með skýrslu um að frumkvæði þingsins heldur setti ég líka á fót starfshóp sem hefur komið fram með sína skýrslu um úrvinnslusjóðinn. Það er bara mjög eðlilegt. Úrvinnslusjóður er 20 ára gamall og þegar hann var settur á laggirnar á sínum tíma var þetta allt annað umhverfi en við sjáum núna. Við erum kannski komin dálítið út fyrir efnið í þessu en ég vonast hins vegar til þess að eiga samtal við hv. þingnefndir og þingið um hringrásarhagkerfið og ekki síst úrvinnslusjóð því að við þurfum að aðlaga hann breyttum tímum.