úrvinnslugjald.
Frú forseti. Ég kem hér klyfjaður í pontu; frumvarpið telur, eins og fram kom áðan, 416 síður. Þá er kannski rétt að byrja á því að minna á tillögu sem Alþingi samþykkti fyrir nokkrum árum, tillögu sem hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson lagði fram, um tölvutækt snið þingskjala, ályktun sem Alþingi samþykkti undir lok vorþings 2016. Það eru akkúrat mál af þessu tagi sem minna okkur á hvers vegna slík þróun er mikilvæg. Töflur ferðast ekki best um heiminn í pdf-formi. Þá verða ekki bara villur heldur er alveg gríðarlegt umstang falið í því að koma þessu til birtingar og síðan aftur inn í tollskrá. Ég get ekki ímyndað mér hversu mörg handtök eru að baki og síðan fram undan, ef Alþingi samþykkir þetta, við að koma þessu inn í öll nauðsynleg kerfi ríkisins fyrir áramót, 416 síður af excel-skjali sem er búið að búta sundur og prenta út hér í pdf-formi til að við getum síðan komið því aftur í excel einhvern tímann seinna. Já, þetta er eiginlega að verða kjánalegt á 21. öldinni. Við notum kannski tækifærið þegar við erum að fjalla um þetta mál, sérstaklega þau sem sitja í hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem væntanlega fær mörg excel-töflum mál til sín, og veltum því fyrir okkur hvort ekki væri þægilegra að hafa þetta öðruvísi, bæði fyrir þingið og fólkið sem vinnur með lögin sem við samþykkjum.
Þetta frumvarp er komið til af því að samþykkt voru lög um hringrásarhagkerfið hér fyrir einu og hálfu ári, í júní 2021. Þó að hæstv. ráðherra hafi kannski þótt við komnir aðeins út fyrir efnið, þegar við ræddum hér í andsvörum skipan stjórnar úrvinnslusjóðs sem einn af áhrifaþáttum í því hversu langan tíma hefur tekið að fá þennan lokahnykk á útfærslu eins og hálfs árs gamalla laga inn til okkar, þá getum við ekki horft fram hjá þeim þætti.
Við fengum nefnilega hér í ágúst síðastliðnum stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á úrvinnslusjóði sem dró mjög margt áhugavert fram sem skiptir máli í samhengi þessa frumvarps. Í fyrsta lagi þá kom mjög skýrt fram að úrvinnslusjóður í heild væri bara allt of veikburða. Það hefði um alla tíð verið of fátt starfsfólk þar innan borðs fyrir sjóð sem veltir milljörðum ár hvert, stöðugildin voru lengst af fimm eða sex. Úrvinnslugjald — 8,6 milljarðar voru innheimtir og stöðugildin voru ekki nema þetta, fimm eða sex, að útdeila þeim peningum áfram og stuðla þannig að virku endurvinnslukerfi.
Það skiptir gríðarlega miklu máli að endurvinnslukerfið okkar beri það með sér að það virki. Það er stærsti snertiflötur almennings við þennan hluta af umhverfismálum. Ef almenningur missir traust á úrvinnslukerfinu þá liggur mér við að segja að voðinn sé vís. Við getum ekki verið að heimta af fólki að það sé að flokka heima hjá sér ef ruslið endar síðan í einhverjum landfyllingum í Malasíu eða í einhverjum skurðum þar sem það brennur, í Eistlandi minnir mig að hafi verið. Við höfum fengið allt of margar fréttir af því að úrgangur sem íslenskur almenningur hefur í góðri trú sent til endurvinnslu hafi ekki ratað rétta leið. Þess vegna skiptir miklu máli að hér sé vandað til verka og þar að auki þarf að endurskoða það hvernig stjórn úrvinnslusjóðs er skipuð og hver aðkoma hennar er að gjaldskrá. Það er svo hápólitískt að setja gjaldskrá um þessi mál að mögulega hefði farið betur á því að ráðherra hefði gert það sjálfur frá upphafi til að við hefðum jafnvel fengið þetta mál til okkar heilu ári fyrir. Ágreiningur á milli hagsmunaafla í stjórn úrvinnslusjóðs er ekkert endilega til árangurs fallinn að ná niðurstöðu í þessu máli.
Í frumvarpinu birtist líka hluti af þeim góðu skrefum sem hafa verið stigin í framhaldi af skýrslu Ríkisendurskoðunar um úrvinnslusjóð. Þar er talað um að efla þurfi samráð milli Skattsins og úrvinnslusjóðs og það að Skatturinn hafi, ef ég skil rétt, unnið þetta frumvarp að mestu leyti sýnir að þar er greinilega kominn skýr grundvöllur fyrir samstarf til framtíðar.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð miklu fleiri. Mig langaði bara að nefna að tölvutækt snið þingskjala gæti einfaldað svona mál og minna á að við þurfum í framhaldinu, alveg óháð þessu máli, að taka til gagngerrar skoðunar heildarmynd úrvinnslumála á Íslandi. Það er farið af stað í ráðuneytinu og við hlökkum öll til að takast á við það í samgöngunefnd þegar þar að kemur.