úrvinnslugjald.
Virðulegur forseti. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagninguna. Ég hefði gjarnan kosið að geta fengið að blaða í gegnum þetta en það eru bara eitt eða tvö eintök hér í salnum, ég hef ekki getað kynnt mér það sem skyldi. Auðvitað er þetta kall tímans. Hæstv. ráðherra er kall tímans þegar hann kallar eftir þessum breytingum á umgengnisvenjum okkar. Það sem knýr marga til að fara og skila umbúðum til Sorpu — maður er stundum að fara með börnin sín sem hafa safnað einhverjum flöskum úr heimilisrekstrinum og það er sem sagt ekið þvert yfir bæinn til að fara með einhverja poka og fá fyrir það 500 eða 1.000 kall eftir atvikum. En nú eru að koma lög um það að þeir sem kasta frá sér ruslinu þurfi að borga með því, ekki satt? Það vekur upp spurningar um hvort ekki sé að einhverju leyti verið að kippa úr sambandi hvatanum til að ganga vel um, eins og okkur er gert að gera, hvort menn fari ekki að losa sig við sorp með einhverjum öðrum hætti, fari að grafa það í jörðu eða eitthvað svoleiðis. En það er auðvitað ákveðin skattlagning innleidd með þessu og ég er bara að hugsa í samhenginu: Kolefnisgjald sem hér var komið á, það er líkt og útvarpsgjaldið forðum, það dreifist bara, fer bara inn í ríkissjóð. Við erum ekki með sama fyrirkomulag og Norðmenn í því að kolefnisgjald sé sett í sjóð sem menn geta síðan sótt í til að fara í þessar dýru orkuumskiptabreytingar, t.d. á vélum skipa eða hvað það nú er. Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum (Forseti hringir.) ekki að taka okkur tak í þeim efnum að aukin skattlagning sé sérstaklega eyrnamerkt þeim verkefnum sem við (Forseti hringir.) erum búin að skrifa undir, Kyoto og París og hvað það er, og er nú verið að sekta okkur fyrir að standa ekki við.