Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

úrvinnslugjald.

572. mál
[12:40]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið eða viðbrögð við því sem ég var að segja. Við í umhverfisnefnd fengum nýlega kynningu frá Sorpu og einnig frá Iceland Pure, endurvinnslu í Hveragerði, sem m.a. er hýst í nýsköpunarhúsinu Grósku í Vatnsmýri. Þar er módelið eilítið öðruvísi en Sorpa kynnti okkur, þeir eru að borga fólki fyrir úrganginn sem það skilar til endurvinnslu. Þetta er ákveðið hráefni sem er verið að skila inn til endurvinnslu. Hagkerfið sem hlýst af því er allt af hinu góða en fyrirhöfnin við það að flokka og skila af sér þyrfti að mínu mati með einhverjum hætti að fela í sér hvata til þess að gera það, eins og þeir eru að bjóða upp á en Sorpa ekki. Sömuleiðis eiga þau gjöld sem innheimt eru af okkur í þessu samhengi öllu, kolefnisgjald eða hvaða aðrar álögur sem um ræðir, að fara í það að við getum risið undir því sem við erum búin að undirrita skuldbindingar um. Það er ákveðinn þverbrestur í því að undirrita samkomulag í Kyoto eða París vitandi það að við búum við aðstæður hér uppi á eyjunni fögru sem krefjast flugsamgangna og olíuknúinna skipa í sjávarútvegi eða flutningum; við getum ekki risið undir þessum loforðum, skuldbindingum, við erum með egg á andlitinu og þurfum að greiða mikla peninga í sektir. Við þurfum að hraða því sem við erum búin að lofa að gera með miklu öflugri hætti og þeir peningar sem eru að innheimtast hér í ýmsum póstum þurfa að fara í það. Ég spyr þingmanninn hvort hann sé sammála um það og síðan hæstv. ráðherra hvort hann telji ekki að við ættum að feta slíka braut í þessum efnum.