Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.

2. mál
[15:55]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það eru breyttir tímar og góð staða hjá fiskeldisfyrirtækjum. Þess vegna verður það enn þá afkáralegra að það sé verið að gefa þeim sérstakan afslátt núna, þ.e. út allt næsta ár. Ég myndi segja að það væri óþarfi, af því að við skulum nú gera ráð fyrir að það verði kominn einhver pappír á borðið á næstu mánuðum úr þessari heildarendurskoðun. Ég minni líka á að það er verið að ákveða vörugjald vegna rafbíla, þar er verið að gera breytingar þrátt fyrir að þar sé líka heildarendurskoðun í gangi. Hvers vegna er þá ekki bara fallið frá öllu þessu sem er í heildarendurskoðun og öllum mögulegum gjöldum sleppt sem leggjast á almenning á Íslandi á meðan einhver endurskoðun er í gangi? Það kemur fram í sama nefndaráliti að ekki á að fara í neinar breytingar á þeim tillögum þrátt fyrir að það komi mögulega frumvarp einhvern tímann (Forseti hringir.) á næsta ári frá fjármálaráðherra eftir að endurskoðun hefur verið gerð varðandi innheimtu á gjöldum vegna samgangna.