breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. 7. þm. Suðvest. fyrir ræðuna. Hv. þingmaður veltir því fyrir sér af hverju meiri hlutinn bregst illa við í sínu nefndaráliti, (ÞSÆ: Bregst ekki við.) bregst ekki við. Það er rétt sem hv. þingmaður segir og er talið upp í nefndaráliti meiri hlutans að nefndin fékk á sinn fund fjölda gesta og ég vil nota tækifærið og þakka hverjum og einum sem kom fyrir nefndina eða sendi nefndinni umsögn kærlega fyrir það því að það skiptir máli. Það er hluti af lýðræðinu og það er hluti af því ferli hvernig við vinnum málin okkar hér á þingi. Ég sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar vil ítreka það að nefndarálitið sem meiri hlutinn hefur lagt fram bregst við í þeim tilvikum þar sem breytingar eru gerðar frá framlögðu frumvarpi. Það eru gríðarlega margar breytingar sem lagðar eru fram í frumvarpinu af hendi ráðherra, en í nefndaráliti bregðumst við fyrst og fremst við þar sem nefndin gerir breytingar. Ég get svo sem tekið undir að það er ein undantekning, það er úrvinnslugjald á heyrúlluplasti þar sem nefndin gerir ekki breytingu á þeirri hækkun sem ráðherra lagði þar til. En við tókum það skýrt fram í nefndaráliti vegna þess að meiri hlutinn beinir þar tilmælum til ráðherra að hann bregðist við þessari hækkun.