Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.

2. mál
[18:10]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Það kom ýmislegt áhugavert fram í ræðu framsögumanns meirihlutaálitsins. Ég er t.d. búinn að læra töluvert meira um acai-ber en ég kærði mig nokkurn tímann um að vita, og acai-berjaduft og acai-berjaís, sem nú verður skattlagður á sambærilegan hátt og sojabaunaís, sem hlýtur að vera mikið framfaraskref, og nú veit ég að acai-ber vaxa ekki í Færeyjum. Það sem stóð þó upp úr var yfirferð yfir stefnu sem þessi ríkisstjórn hefur boðað í gegnum tíðina, og boðar nú, allra handa hækkanir á öllu mögulegu, hækkanir yfir línuna og ótrúleg hugmyndaauðgi í skatta- og gjaldahækkunum, sérstaklega á því sviði sem hægt er að skella græna stimplinum á. Endurvinnslu- og úrvinnslugjald hækkar, m.a. á plastvörum, og ef ég heyrði rétt, ef mér skjátlast ekki, frú forseti, þá verður lagt gjald á blöðrur sem segir kannski sína sögu um hversu loftkennt þetta er allt saman orðið og mikill vöxtur, útblástur, í þessum gjaldaaukningum. En plast er mjög hagkvæmt efni og hefur reynst mjög vel, ódýr lausn á hinum ýmsu sviðum eins og ég kem aðeins betur inn á hér á eftir.

Hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar, Guðrún Hafsteinsdóttir, vék líka að gjaldahækkunum á sviði umferðar, þar eru ýmsar hækkanir í vændum, einu sinni sem oftar, en benti á að verið væri að breikka skattstofna vegna áforma eða væntinga eða vona um framkvæmdir á sviði samgöngumála. Nú er það svo að þau miklu gjöld sem lögð hafa verið á umferð í gegnum tíðina, sérstaklega í formi beinnar gjaldtöku af bifreiðum og eldsneyti, hafa ekki runnið til samgöngubóta nema að hluta, kannski svona u.þ.b. helmingi. Á sama tíma og menn verja ekki meiru í samgöngubætur heldur þessi ríkisstjórn áfram að auka álögurnar og hækka gjöld á vegfarendur, gera það dýrara og erfiðara fyrir fólk að komast leiðar sinnar, refsa því fyrir að þurfa að komast leiðar sinnar og gera það svona í takt við stefnu meiri hlutans hér í Reykjavík sem þessi ríkisstjórn, og innviðaráðherrann ekki hvað síst, hefur verið í miklu samkrulli með undanfarin ár. Engin tillaga eða hugmynd frá meiri hlutanum í borgarstjórn hefur verið nógu vitlaus til að þessi ríkisstjórn léti ekki táldraga sig eða leiða sig út í eitthvert samstarf um að gera það að veruleika.

Það birtist m.a. í miklum áformum um borgarlínu þar sem nú er gert ráð fyrir sérstöku gjaldi, sérstöku nýju gjaldi, gjaldahækkunum auðvitað, til þess að fjármagna þátttöku ríkisins í að láta það furðulega verkefni — sem snýst auðvitað fyrst og fremst um að þrengja að umferð í Reykjavík, yfirlýst markmið, vel að merkja, frú forseti, ekki eitthvað sem ég er að finna upp á heldur yfirlýst markmið að leggja borgarlínu til að þrengja að annarri umferð, og í því skyni ætlar ríkisstjórnin að leggja á ný gjöld, umferðargjöld sem voru upphaflega kölluð tafagjöld þangað til einhver áttaði sig á því að það væri of sönn lýsing á því um hvað væri að ræða og nafninu var breytt í flýtigjöld. En gjöldin eru þau sömu. Þau eru í eðli sínu þau sömu. Við þessa fjárlagagerð, við 2. umr. fjárlaga, kynnti fjárlaganefnd sérstaka greiðslu, hátt í milljarð króna, eins konar sektargreiðslu, vegna þess að ríkisstjórnin hefði ekki verið nógu fljót að leggja á nýju gjöldin sem áformuð eru til að standa straum af þessu verkefni. Við höfum svo sem heyrt alls konar hugmyndir um gjaldtöku hér og þar og með ýmsum hætti en innviðaráðherrann skiptir reyndar svo reglulega um skoðun á því hvort eða hvernig þessi veggjöld verði lögð á að erfitt er að henda reiður á hver staðan er hverju sinni og hvað ríkisstjórnin ætlar sér.

En þá aftur að plastinu, frú forseti, og umræðu sem hér hefur orðið um heyrúlluplast. Þetta barst reyndar í tal fyrr í dag í umræðu um annað mál, mál umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, og þar var fátt um svör. Ráðherrann virtist, svo ég endurorði aðeins, útskýra að tölvan í ráðuneytinu hefði bara sagt sér að gera þetta, vegna þess að þetta tengdist því máli sem við værum að tala um núna, vegna þess að þá þyrfti að ræða þetta undir þeim lið. Svo kemur hér hv. framsögumaður meirihlutaálits, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, og vísar málinu aftur á ráðherra og að nefndin hafi þurft að gera þetta. Væntanlega hefur tölvan þá sagt nefndinni að þetta þyrfti að gerast og því er einhverri hvatningu beint til ráðherrans. Ég veit ekki hvort það er sami ráðherrann og áður hafði vísað á nefndina til þess að gera eitthvað í málinu.

Svo koma frekari skýringar á þessu og tekið er sérstaklega fram að nefndarmönnum, þá ekki hvað síst hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar, þætti afskaplega leiðinlegt að þurfa að hækka þetta gjald svona mikið, en það leggst mjög þungt á bændur eins og farið hefur verið yfir fyrr í dag, en það væri bara ekkert við því að gera vegna þess að þetta væri afleiðing af því að ríkisstjórnin, Sjálfstæðismenn, hefði fyrir skömmu samþykkt ný lög um Úrvinnslusjóð og vegna þess að þessi lög hafi verið samþykkt þá bara væri ekki um neitt annað að ræða en að gera það sem menn langaði ekki að gera og hækka þessi gjöld. Og þá veltir maður fyrir sér: Var ekki vitað á sínum tíma hverjar afleiðingar þessara laga yrðu eða kynntu menn sér það bara ekki? Ég tel það reyndar líklegustu skýringuna af því að hér hafa flotið í gegn alls konar umfangsmiklir lagabálkar, að miklu leyti frá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, og svo kannski núna frá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, eftir að hann varð vinstri grænni en jafnvel margir Vinstri grænir. Þessi mál fljóta í gegn án þess að menn geri sér almennilega grein fyrir áhrifunum, (GÞÞ: Hver var í París? Ég eða þú?) svo kemur bara í ljós (GÞÞ: Ég eða þú?) hver raunveruleg áhrif eru. (GÞÞ: Ég eða þú?) Svo kemur í ljós hvaða áhrif það hefur að samþykkja þessa miklu lagabálka eins og hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar hefur nú uppgötvað og þykir afskaplega leiðinlegt að þurfa að hækka gjöld á bændur þetta mikið en tölvan bara segir að það verði að gera það vegna þess að flokkurinn væri búinn að samþykkja mál sem hann vissi ekki hvaða áhrif hefði.

Þetta er lýsandi fyrir lagasetningu og pólitíska framgöngu þessarar ríkisstjórnar. Hér fljóta í gegn þessi báknmál sem svo eru notuð sem afsökun fyrir því að hendur manna séu bundnar og ekki sé hægt að gera það sem hv. þingmenn raunverulega langar að gera og það sé ekki hægt að fylgja stefnu flokksins eða hugsjónum hans því að það sé búið að gera þessa og hina samninga og samþykkja hin og þessi lög. Margt af þessu varðar náttúrlega umhverfismálin. Hv. þm. Bergþór Ólason orðaði þetta ágætlega hér í andsvari fyrr í þessari umræðu, kallaði það hringrásarvitleysu, en hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar sagði að þetta væri einfaldlega afleiðing af því að við værum að fikra okkur áfram í átt að hringrásarhagkerfinu. Það þýðir þá að það þarf að borga margfalt meira fyrir úrvinnslu á þessu plasti, heyrúlluplasti, en ella hefði verið. Þó er það álitamál líka og mjög óljóst í frumvarpinu og í nefndaráliti því þar er reynt að setja þetta í samhengi við úrvinnslukostnaðinn en svo vísað í að þetta snúist um kostnaðinn við að safna þessu saman. Hér fara hlutirnir augljóslega ekki saman. Þó liggur fyrir, eins og fram kom í máli hv. formanns efnahags- og viðskiptanefndar, að úrvinnslukostnaður á kíló nemi 120 kr. á Íslandi en ef við flyttum þetta út væri kostnaðurinn 38 kr. og hvort sem raunin er að þetta snúist um kostnaðinn við að safna plastinu saman, sem enginn hafði bent á að væri mikið vandamál fram að þessu, eða ef þetta snýst raunverulega, óháð því sem kemur fram í frumvarpinu, um úrvinnslukostnaðinn, þá hlýtur það að valda okkur áhyggjum ef búið er að lögfesta svo óhagkvæmt fyrirkomulag að við getum ekki ráðist í að vinna úr þessu plasti fyrir 38 kr. heldur neyðumst til að borga 120 kr. á kílóið, eða réttara sagt bændur. Þar lendir kostnaðurinn á endanum eða a.m.k. megnið af honum.

Þetta er í takt við eitt og annað sem við höfum séð hjá þessari ríkisstjórn, til að mynda þau refsigjöld sem nú eru boðuð vegna þess að við höfum ekki dregið eins mikið úr losun gróðurhúsalofttegunda og stjórnvöld boðuðu annaðhvort í einhverju bjartsýniskasti eða tilraun til að vekja lukku á ráðstefnum erlendis. En hvað ætti að gera við allt þetta plast? Því að heyrúlluplast, eins og plast í mörgum hlutverkum, er hagkvæmt, mikilvægt og gagnlegt við framleiðslu og í þessu tilviki við framleiðslu á matvælum, því mikilvægasta sem við framleiðum.

Í fyrsta lagi ætti ekki að refsa bændum fyrir vanhugsaðar hugmyndir og dyggðamont ríkisstjórnarinnar, ekki að taka af þeim strax aftur þann litla stuðning sem hafði skilað sér til þeirra vegna þeirrar stöðu sem íslenskur landbúnaður hefur verið settur í.

Í öðru lagi ætti að fara með þetta plast á sem hagkvæmastan, skynsamlegastan og nýtilegastan hátt og það er t.d. með því einfaldlega að brenna það, frú forseti. Þetta kann að koma virðulegum forseta á óvart en líklega er besta ráðstöfun sem hægt er að gera varðandi plastúrgang að kveikja í honum. En það skiptir auðvitað máli hvernig það er gert og við höfum, þingmenn Miðflokksins, ítrekað lagt fram tillögur um byggingu hátæknisorpbrennslu. Með slíkri aðstöðu er hægt að nýta plast og brenna á umhverfisvænni hátt heldur en náttúrugasi, það eru fundnar upp aðferðir til þess að nýta plastúrgang sem orku og brenna á hagkvæmari hátt en náttúrulegu gasi og umhverfisvænasti orkugjafinn af öllum í brennslu er heimilissorp, frú forseti. Heimilissorp, ef menn nota rétta tækni, losar minnst af gróðurhúsalofttegundum við bruna þegar því er breytt í orku. Þessi aðstaða er ekki til á Íslandi núna og það hefur verið vanrækt eins og með svo margt annað að bæta þar úr. En það er þó skárra að flytja þetta heyrúlluplast út og borga þá fyrir það 38 kr., og einhverjir græða jafnvel á því að nýta það sem eldsneyti og brenna á hagkvæman hátt, heldur en að borga 120 kr. á kílóið fyrir að farga því hér og velta kostnaðinum yfir á bændur.

Hæstv. forseti er eflaust farinn að sjá hér ákveðinn rauðan þráð í þessari stuttu ræðu minni. Hann er sá að þessi ríkisstjórn og þessi stjórnvöld eyða óhemjutíma í yfirbragð og umbúðir, yfirlýst markmið, langanir, en þegar kemur að lausnum er fátt um svör og þegar kemur að aðgerðum þá ganga þær jafnvel í berhögg við yfirlýst markmið. Það sjáum við gerast eina ferðina enn núna í þessum aðgerðum tengdum fjárlögum, bandorminum svokallaða. Það eru hækkanir yfir línuna og í mjög mörgum tilvikum hækkanir sem bitna fyrst og fremst á tekjulægra fólki og svo fylgja einhverjar umbúðir eða reynt er að pakka þessu inn í þær umbúðir að það sé leitt að þetta þurfi að gerast en það sé bara óhjákvæmilegt, en að einhvern tíma seinna ætlum við að laga þetta. Ég held að það sé fullreynt, frú forseti, að þessi ríkisstjórn muni nokkurn tímann laga þetta.