Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.

2. mál
[18:30]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég skil hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson svo að honum þyki eðlilegt að flytja þennan úrgang til annarra landa þar sem sú orka sem þar verður til gæti hugsanlega nýst til húshitunar á köldum svæðum. Hann spyr sömuleiðis um úrvinnslu og söfnun og ég vil ítreka það að ég held að ekki sé hægt að slíta þetta í sundur, þetta hangir saman. Bændur safna plastinu, það er sótt til þeirra og það er ekki ókeypis að fara í allar sveitir landsins á bílum og safna þessu saman. Þessu er síðan komið á sameiginlega safnstöð þar sem þetta er unnið áfram. Við skulum ekki gleyma því að það standa fyrir dyrum ákveðnar breytingar varðandi hringrásarhagkerfið. Það kerfi felur í sér að við sem samfélag erum að auka ábyrgð framleiðenda og innflytjenda, að þeir taki ábyrgð á vöru frá a til ö á grundvelli þeirra skyldna sem breytingarnar fela í sér. Þá hefur Úrvinnslusjóður lagt fram þessar tillögur sem eru í formi gjaldahækkana og hefur verið í samtali við ráðuneytið varðandi það. Þetta virkar kannski flókið en þetta er bara sá veruleiki sem við sem þjóð stöndum frammi fyrir. Við verðum að bera ábyrgð á, við getum sagt, því rusli sem til fellur í kringum okkur. Þetta er framleiðendaábyrgð, þetta er innflytjendaábyrgð, þetta á við um umbúðir eins og pallettur sem við flytjum vörur á til landsins. Þessar pallettur eru kannski fullar af pappakössum en eru síðan plastaðar. Þetta eru margar tegundir af efnum sem þarf að gæta sérstaklega að.