Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

menningarminjar.

429. mál
[20:12]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég skil tilgang þessa máls en tel rétt að menn velti aðeins fyrir sér útfærslunni á þessu. Ég fylgdist með 1. umr. um málið og þar komu fram ýmis sjónarmið sem að voru mínu mati sum hver til þess fallin að valda manni smááhyggjum um framhaldið því að eins og boðað er í frumvarpinu og áliti meiri hlutans þá stendur til að fara í endurskoðun á þessum málaflokki eða þessari löggjöf og það bar á tilhneigingu hjá sumum þeirra sem fjölluðu um málið í 1. umr. til að lýsa yfir a.m.k. vonum til þess að dregið yrði úr varðveislu gamalla húsa eða því regluverki sem um hana hefur gilt. Auðvitað má alltaf gera hlutina betur og á skilvirkari hátt. Það á m.a. við um þennan málaflokk en það er þó rétt að hafa það í huga að fá lönd, raunar líklega ekkert Evrópuland, eiga jafn hlutfallslega lítið af húsum sem við getum kallað gömul hús og við Íslendingar.

Einhvern tímann tók ég saman tölur um þetta og miðaði þá við árið 1930 því það ár breyttist húsagerð mjög verulega og ekki bara á Íslandi, þetta voru auðvitað einnig árin þar í kring en sérstaklega árið 1930 þegar menn hurfu frá hefðbundinni húsagerðarlist, klassík, á því formi sem var í hverju landi og þar með alveg sérstakt form klassískrar byggingarlistar sem hafði þróast á Íslandi, og er stundum kallað steinsteypuklassík, og við tók það sem í skýringum með frumvarpinu var nefnt virknihyggja, sem er svo sem ágætisorð en er innan gæsalappa fúnksjónalismi. Það var sem sé vikið frá hinum hefðbundnu fagurfræðilegu reglum byggingarlistar eða sögulegu reglum byggingarlistar, þeim stíl sem einkenndi kannski hvert svæði eða hvert land og við tók það sem einnig er stundum kallað internasjónalismi eða alþjóðastíll í byggingarlist, svo kallað vegna þess að það var ekki lengur neinn greinilegur munur á byggingarstíl eftir svæðum eða löndum. Þetta snerist allt um fúnksjónalismann eða virknihyggju eins og það er kallað hér. Af þeim sökum hef ég talið, fyrst menn hafa áhyggjur af því að friðuðum húsum muni fjölga mjög verulega nú, að rétt væri að líta til ársins 1930 fremur en að stoppa strax 1923. Það er auðvitað gert vegna þess að nú eru liðin 100 ár frá 1922 og lögin taka gildi á næsta ári og þá hafa menn talið það tækifæri til að hafa mörkin þar. En það er verulega mikið, ekki í fjölda en svona hlutfallslega miðað við þá litlu gömlu byggingararfleifð sem við eigum, af húsum sem voru byggð á þriðja áratugnum, eftir 1923, milli 1923 og 1930, sem væri þess vert að vernda. Ég beini þessu þess vegna til nefndarinnar og vísa aftur í þá vinnu sem boðuð hefur verið, að menn hugleiði hvort ekki sé rétt að reyna að vernda þetta litla sem við eigum af því sem kalla má sérstaka sögulega íslenska byggingarlist.

Ég nefndi það hérna áðan þegar ég var að byrja, frú forseti, að þegar ég skoðaði þetta á sínum tíma hefði ég miðað við árið 1930. Þá komst ég að því að innan við 2% bygginga á Íslandi voru frá því fyrir þann tíma, hugsanlega 1,8% eða 1,9%, sem var lægsta hlutfall í Evrópu. Nú hefur þetta hlutfall lækkað enn því þetta var fyrir allnokkru síðan og mikið verið byggt í millitíðinni. Fyrir vikið finnst mér rétt að við hugleiðum hvort ekki sé ástæða til að vernda þetta þó hlutfallslega mjög lága hlutfall íslenskra bygginga sem bera sérstök íslensk hönnunareinkenni. Ýmsir myndu benda á það að seinni tíma arkitektúr geti haft íslensk einkenni líka, vissulega er það rétt, en þarna er ég að vísa til sögulegra klassískra einkenna, menningarlegra einkenna þess sem í mörgum löndum og borgum og bæjum myndar það sem kallað er gamla byggðin, „Altstadt“ á þýsku eða „old town“ á ensku og við eigum bara því miður ekki nógu mikið af hér á Íslandi.

Það er alveg sérstök sorgarsaga hvernig farið hefur verið með margar gamlar byggðir hér og ekki hvað síst í borginni þar sem við stöndum núna, í Reykjavík. Og það vekur athygli mína við yfirferð frumvarpsins og greinargerðar og athugasemda við frumvarpið að Reykjavíkurborg virðist hafa hvað minnstan áhuga á því að viðhalda verndun gamalla húsa í sinni umsögn, enda hafa borgaryfirvöld þar farið á stundum að mínu mati fram með hreinum fjandskap við gömlu byggðina hér í bænum, sýnt þeirri byggð lítilsvirðingu.

Þá kem ég að því sem átti kannski að vera aðalatriði hjá mér, að þessi lög sem við ræðum hér breytingu á voru að mínu mati mikið framfaraskref, sett 2012 af þáverandi menntamálaráðherra sem nú er hæstv. forsætisráðherra og breytingar gerðar í þinginu sem margar hverjar voru til bóta. Þetta markaði ákveðin tímamót og gaf manni væntingar um að horfið yrði frá því sem hefur verið allt of ríkjandi á Íslandi, að bera ekki næga virðingu fyrir hinum byggða menningararfi. Vandinn hefur hins vegar verið sá að þrátt fyrir þessi lög þá hefur vantað mikið upp á eftirfylgni. Það hefur vantað upp á að lögunum væri fylgt. Fyrir vikið veldur það mér dálitlum áhyggjum verði lögin veikt núna. Ég segi aftur, frú forseti: Ég skil hvað átt er við varðandi það að 100 ára gömlum byggingum fari jafnt og þétt að fjölga á hverju ári en í ljósi þess að þessum lögum, sem nú er orðin tíu ára gömul, hefur ekki verið fylgt nægilega vel, þá óttast ég að þetta geti leitt til enn frekari veikingar í framkvæmdinni en vonandi er það eitthvað sem verður þá lagað í þeirri vinnu sem boðuð hefur verið. Ég vona að afrakstur þeirrar vinnu feli ekki í sér sum þeirra sjónarmiða sem maður heyrði hérna í 1. umr. um að það væri stundum of mikið vesen að vernda gömlu byggðina á Íslandi, því við eigum einfaldlega ekki nógu mikið af henni og hún er verðmæt fyrir okkur öll, ekki bara fólk sem býr í gömlum húsum eða í nágrenni við þau heldur byggðina alla. Heilu borgirnar geta verið verðmætari, eigi þær sterka gamla byggð. Ég nefni bara eitt dæmi, Prag. Þegar menn hugsa um Prag, höfuðborg Tékklands, sjá þeir eflaust fyrir sér fallegu gömlu miðborgina í Prag, en hún er kannski bara 5% af borginni. Megnið af Prag eru blokkir byggðar á tímum kommúnistanna en jafnvel þær eru verðmætari og eftirsóknarverðari bústaðir vegna þess að borgin býr að þessum menningararfi, býr að stað sem íbúarnir allir geta safnast saman á á hátíðisstundum eða einfaldlega til að fara á kaffihús eða skemmta sér og notið þess að vera í fallegu umhverfi í samneyti við aðra. Þetta skortir okkur á Íslandi, þetta skortir okkur í Reykjavík og þrátt fyrir þessa lagasetningu sem nú er verið að breyta hafa því miður ekki orðið nógu miklar framfarir eða nógu mikil skilningsaukning á mikilvægi þessa.

Að lokum, frú forseti, til að undirstrika það hvers vegna ég tel að það eigi frekar að miða við 1930 en 1923, þá vísa ég í töflu sem fylgir þar sem birtur er fjöldi byggðra húsa hvert ár frá 1918–1923, 1920 voru þau 460 og svo 1921 fóru þau niður í 146 og svo rúmlega 200 árið þar á eftir. 200 hús eða 200 íbúðir á einu ári er ekki mikið. Þótt við bætum þarna við fáeinum árum í viðbót, sjö árum í viðbót, þá myndi það ekki, held ég, vanda neinu verulegu álagi eða verða áhyggjuefni fyrir þá sem halda utan um þessi mál heldur frekar vera til þess fallið að vernda þá gömlu byggð sem við þó enn eigum.

Eitt í viðbót sem ég gleymdi að nefna, frú forseti, er að rök með þessari 1923-viðmiðun voru m.a. þau að þá hafi fyrstu lög um skipulag bæja og kauptúna verið staðfest, að þau hafi verið staðfest 1921 og þá verið farið að vinna eftir þeim 1922 og 1923 og það hafi markað upphaf aðkomu hins opinbera að skipulagi þéttbýlis á Íslandi. En þá spyr ég bara: Hvers vegna ætti ekki að vernda neitt af upphafsárum opinbers skipulags á Íslandi? Því að á þessum árum, eftir að farið var að ráðast í opinbert skipulag bæja, þá urðu til ekki aðeins áhugaverðar byggingar heldur heilu göturnar og götumynd er eitthvað sem við hljótum að vilja vernda. Því miður var ekki ráðist í allar þær góðu hugmyndir sem fram komu á þessum árum. Háborgin hérna uppi á Skólavörðuholti var ekki byggð en eitt og annað var gert og það væri mikil synd ef þessi breyting leiddi til þess að þær þó tiltölulega fáu heillegu götumyndir frá fyrstu árum opinber skipulags á Íslandi, oft hannaðar af Guðjóni Samúelssyni og samverkamönnum hans, myndu eyðileggjast fyrir vikið og það yrðu rifin tiltölulega lítil hús í steinsteypuklassík sem þó mynda hluta af heild og í staðinn byggt eitthvað úr stáli og gleri eða hrárri steinsteypu. Þess vegna ítreka ég það, frú forseti, að ég skil hugsunina með þessu frumvarpi en ég myndi vilja miða við árið 1930 og legg áherslu á að í þeirri vinnu sem fram undan er verði hugað að því hversu tiltölulega lítið við Íslendingar eigum af menningararfleifð á sviði bygginga og skipulags.