menningarminjar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að nefna svokölluð verndarsvæði í byggð sem ég taldi mjög mikilvægt að yrði komið á hér á Íslandi — góð reynsla af þessu í bæði Bretlandi og Bandaríkjunum til að mynda. Því miður vannst mér ekki tími til að fylgja því eftir með reglugerðinni sem átti að fylgja málinu og þeirri reglugerð hefði sérstaklega verið beint að Reykjavík eða hún hefði verið hugsuð fyrir Reykjavík til að taka á því sem maður hafði upplifað þá þegar og óttaðist að yrði áfram raunin, að Reykjavík líti ekki á það sem tækifæri að vernda gömlu byggðina heldur myndi frekar vilja rífa eins mikið og hægt væri. Oft er þetta gert, af því að hv. þingmaður spyr um ástæðuna, í nafni svokallaðrar þéttingar byggðar, enn eitt dæmið um það hvernig borginni, og reyndar víðar á það sama við, er stjórnað út frá einhverjum frösum eða einhverjum svona hálfgerðum pólitískum trúarbrögðum án þess að menn almennilega gerir sér grein fyrir innihaldinu eða áhrifunum. Þétting byggðar kann að eiga rétt á sér sums staðar, en því skyldi borgin leggja mesta áherslu á að þétta byggð þar sem hún er þéttust fyrir og þar sem byggðin er einstök að því leyti að hún er eina gamla byggðin í Reykjavík? Þetta er í rauninni alveg furðulegt. Það er búið að vera furðulegt að fylgjast með þessu árum og áratugum saman, ég tala nú ekki um það þegar menn svo skoða tölurnar um þéttleika byggðarinnar. Ég gerði það á sínum tíma, það eru allmörg ár síðan, það var áður en ég byrjað í pólitíkinni, og gamli miðbærinn hérna er þéttbýlli, eða var þá, heldur en gamli miðbærinn í Kaupmannahöfn. Það bjuggu fleiri á fermetra í gamla bænum í Reykjavík heldur en í gamla bænum í Kaupmannahöfn. (Forseti hringir.) Samt eru rifin hér þessi fáu gömlu hús sem við eigum eftir til að byggja eitthvað úr gleri og stáli.