Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

Vísinda- og nýsköpunarráð.

188. mál
[21:18]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ég sem er að spyrja hér í andsvörum en ekki öfugt, svo það liggi fyrir. Það sem er hérna undir er þetta virðast vera sömu gömlu hagsmunaaðilarnir og eru venjulega settir í svona tilnefningarnefndir og ráð. Varðandi t.d. samtök launafólks þá kemur fram í umsögn Auðnu og segir hér, með leyfi forseta:

„… aðkoma launþegahreyfingar, sem hefur verið nánast óvirk og áhugalítil í nýsköpunarumræðu síðustu ára, eða aðkomu Samtaka atvinnulífsins, sem er í litlum tengslum við sprota- og nýsköpunarumhverfið. Það dregur úr trúverðugleika tilnefninga í hið ráðgefandi Vísinda- og nýsköpunarráð“ — þ.e. að þau séu í þessari tilnefningarnefnd, svo það liggi fyrir.

Ég get líka vísað til Verkfræðingafélagsins. Það var mjög áhugavert þegar þau komu fyrir nefndina og klárlega mjög hæft fólk þar, sennilega hæfasta fólkið. Þar kom kona sem er búin að vera að reka sprotafyrirtæki og var áður í Vísinda- og tækniráði. Hún lagði mikla áherslu á það að samtök félags tæknimenntaðra á Íslandi með rúmlega 5.000 félagsmenn sem eru í norrænum samtökum, sem eru síðan í hagsmunasamtökum á Evrópustigi gagnvart Brussel og hafa mikil tengsl erlendis, þau fá ekki að komast í tilnefningarnefndina. Ég get ekki annað séð en að þetta sé bara gamla íslenska klíkusamfélagið þar sem útilokunarreglu er beitt. Ég get ekki annað en tekið undir með Samtökum frumkvöðla og hugvitsmanna um að þetta fyrirkomulag muni áfram útiloka aðkomu hugvitsfólks að ráðinu líkt og verið hefur. Enn þá er verið að útiloka það og þetta skiptir sáralitlu upp á aðkomuna. Þau eru bara að óska eftir að fá að vera með. Ég tel að allir eigi að fá að vera með en það vilja stjórnvöld og þingmeirihlutinn ekki. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að allir fái að vera með og þessi samtök séu ekki útilokuð. (Forseti hringir.) Það væri gott að fá að heyra álit hv. þingmanns á þessu.