153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[22:29]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar til — af því að ég hafði ekki þessar upplýsingar áðan eða mundi ekki eftir þeim en þær eru í greinargerð frumvarpsins þar sem kemur fram hverjir sátu í starfshópnum. Anna Sigríður Arnardóttir lögfræðingur var formaður hópsins, Ágúst Bjarni Garðarsson, þá aðstoðarmaður ráðherra, var þar líka. Síðan var Einar Árnason, formaður Bifreiðastjórafélagsins Fylkis og annar leigubílstjóri sem var Sæmundur Kr. Sigurlaugsson, fulltrúi Bifreiðastjórafélagsins Frama, þannig að í hópnum sátu tveir bifreiðastjóra fyrir sín félög sem eru sjálfsagt undir Félagi bifreiðastjóra. Telur hv. þingmaður ekki að því hafi þá verið fullnægt?

Í öðru lagi langar mig til að spyrja hv. þingmann, þar sem hann var að tala um þjónustu við viðkvæma hópa og sér í lagi Bindrafélagsins og það er mjög mikilvægt að sú þjónusta haldist og verði góð, hvað það sé nákvæmlega í þessum breytingum með þessu frumvarpi sem hann telur koma í veg fyrir að sú þjónusta verði áfram góð.