leigubifreiðaakstur.
Herra forseti. Það er þekkt að við gerumst hér iðulega kaþólskari en páfinn þegar kemur að innleiðingu regluverks sem kemur á færibandinu frá Brussel. Til að svara spurningu sem ég gleymdi að svara í fyrra andsvari er varðar það hvort ESA sé á eftir Noregi varðandi t.d. regluverkið sem er við lýði í Bergen þá er það ekki raunin samkvæmt mínum upplýsingum. Það blasir við, sýnist mér, með þessu frumvarpi og þeim litlu breytingartillögum sem koma frá meiri hluta nefndarinnar eftir vinnslu málsins núna það sem af er vetri, að það er verið að ganga miklu lengra heldur en þessar athugasemdir ESA kalla á, ef menn eru svo litlir í sér að telja það mestu hættuna sem vofi yfir íslensku samfélagi að þaðan berist eitt bréf til viðbótar. Við erum einhvern veginn föst í þeirri stöðu að hæstv. innviðaráðherra hafi bitið það í sig að hann verði að klára þetta mál, það sé bara lífsspursmál fyrir hann pólitískt að koma málinu í gegn. Það er gengið miklu lengra en þörf er á. Sé ætlunin að grundvalla þetta á athugasemdum ESA þá blasir við í samhengi hlutanna, ef við skoðum stöðuna í Noregi og regluverkið þar og það sem er verið að leggja til hér, að málið er komið alveg út í mýri. Það er enginn annar en hæstv. ráðherra sem hefur leitt það þangað. Hann mun bera skömmina af því þegar þessi meinta eftirfylgni og úttekt á sér stað næsta árið, þegar það væri auðvitað miklu skynsamlegra að fylgjast með þróun mála í Noregi og þeirri úttekt sem þar er raunverulega í gangi.