153. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[00:48]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Eins og ég kom inn á í lok fyrri ræðu þá erum við að ræða um tilraunaverkefni, enn fremur óhugnanlegt tilraunaverkefni. Það snýst um að leggja niður heila starfsstétt og sjá hvort alþjóðahagkerfið, erlend fyrirtæki og, eins og dæmin sanna í öðrum löndum, fólk sem lýtur ekki endilega þeim reglum og kjörum sem gilda í heimalandinu — þetta finnst mér hreinlega dapurlegt. Mér finnst vera algerlega óforsvaranlegt að það eigi að keyra þetta mál í gegn hér í fjórðu tilraun án þess að stuðningsmenn málsins treysti sér til að mæta í þingsal til að verja það. Þeir hv. þingmenn sem hafa rætt um þetta mál eru búnir að benda á fjölmarga galla við málið og málsmeðferð þess, til að mynda þá staðreynd að ekki hafi verið haft viðhlítandi samstarf eða samráð við þá sem munu verða fyrir mestum áhrifum af málinu, auðvitað sérstaklega þá sem starfa í greininni en einnig viðskiptavini íslenskra leigubílstjóra. Hér er því verið að taka stóra grundvallarákvörðun án raunverulegs samráðs við fólkið sem verður fyrir mestum áhrifum og án þess að stuðningsmenn málsins treysti sér til að verja það.

Hvað segir það okkur um starfsaðferðir Alþingis að innanríkisráðherra skuli á einhverjum tímapunkti hafa ákveðið að hann þyrfti að koma þessu máli í gegn, talið það sniðugt eða talið sig þurfa að gera það vegna EES-reglugerða eða hvort tveggja og að þingmenn ekki einungis Framsóknarflokksins heldur allra stjórnarflokkanna ákveði að þá þurfi þeir bara að aðstoða hann við að keyra málið í gegn en reyndar ekki með rökum, ekki með þátttöku í umræðu um málið heldur með því að afgreiða það eftir miðnætti rétt fyrir jól? Rétt eftir að stéttin sem málið varðar, leigubílstjórar, er að koma sér á strik og ná sér eftir afleiðingar Covid-faraldursins, er búin að vera að reyna að sinna öllu því mikla regluverki og nýjum gjöldum sem á þessa stétt hafa verið lögð þá ætlar Alþingi að láta til skarar skríða rétt fyrir jól, eftir miðnætti, og keyra í gegn mál sem menn treysta sér ekki einu sinni til að verja.

Þetta segir sína sögu um eðli þessa máls og þeir sem munu styðja það þegar þar að kemur ættu að líta til sögu málsins og velta fyrir sér hvort þeir muni í framtíðinni treysta sér til að verja það gagnvart þeim sem verða fyrir mestum áhrifum af því. Við munum, eins og boðað hefur verið, leggja fram breytingartillögur við þetta mál, ekki bara tillögur um að falla frá málinu heldur líka tilraunir til að a.m.k. vinna tíma til að skoða betur hvort þetta sé raunverulega það sem þingið vill gera, það sem íslenskir stjórnmálamenn vilja gera, tíma til að skoða reynsluna úr öðrum löndum sem hafa farið mjög illa út úr sambærilegri löggjöf og horfið frá henni eða eru að endurmeta hvernig fyrirkomulagið eigi að vera. Af óskiljanlegum ástæðum vill ríkisstjórn Íslands ekki nýta þá reynslu eða líta til áhrifanna annars staðar. Og þó, vonandi. Vonandi snýst henni hugur og skiptir um skoðun og styður breytingartillögur okkar. Ég hvet a.m.k. íslenska leigubílstjóra til dáða við það að (Forseti hringir.) hafa samband við þingmenn sína og biðja þá a.m.k., eins og þeir hafa reyndar gert nú þegar, (Forseti hringir.) að gefa þessu tíma til að læra af reynslu annarra og koma í veg fyrir það að heil starfsstétt verði lögð af á Íslandi.