153. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[00:53]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kom hér áðan stuttlega inn á það hversu lítið þingmenn stjórnarflokkanna, þá sérstaklega þeir sem skrifa undir nefndarálit sem hér liggur fyrir, fulltrúar stjórnarflokkanna í hv. umhverfis- og samgöngunefnd, hafa tekið þátt í umræðunni. Undir nefndarálitið rita Vilhjálmur Árnason, formaður og hv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Njáll Trausti Friðbertsson, hv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir framsögumaður sem tók til máls hér í kvöld, hún gat ekki annað, hv. þm. Orri Páll Jóhannsson, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hv. þm. Ingibjörg Isaksen, fulltrúi Framsóknarflokksins, og hv. þm. René Biason, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Aðeins einn af sex fulltrúum stjórnarflokkanna í umhverfis- og samgöngunefnd hefur tekið þátt í umræðunni og það var sá eini þeirra sem gat ekki annað, verandi framsögumaður nefndarálits meiri hluta.

Hvað er það við þetta mál sem liggur svona mikið á að keyra í gegn og orsakar að þingmenn stjórnarflokkanna í nefndinni sem fjallar um málið vilja ekki taka þátt í umræðunni? Er það hræðsla við andsvör? Eru það hræðsla við að þurfa að segja eitthvað annað en þingmennirnir eru að segja við leigubílstjóra úti í bæ? Ég veit það ekki. Við fáum ekki svör því að ágætir þingmenn stjórnarflokkanna, sem ég gef mér að ætli að styðja þetta mál í atkvæðagreiðslu, virðast ekki vilja verja það, vona að einhver annar geri það, láta duga að hv. framsögumaður nefndarálitsins, Halla Signý Kristjánsdóttir, klári sig af því. Það mætir enginn hérna. Það er að öllum líkindum verið að leggja niður heila starfsstétt í núverandi mynd sinni. Menn ætla svona að fylgjast með því næsta árið hvernig lífsmörkin verða, ef einhver, og ef eitthvað kemur út úr þeirri skoðun þá ætla menn kannski að gera eitthvað — þegar það er heill her hæfra manna og kvenna í Noregi að gera greiningu á því sem væri hægt að læra af undir lok næsta árs.

Ég held að það sé fyrst og fremst sorglegt með hvaða hætti stjórnarflokkarnir hafa ákveðið að nálgast þetta mál og enn vitum við í raun ekki hver á krógann. Er það ESA sem ekkert hlutverk hefur hér í þessum sal hvað þetta varðar? Er verið að umbylta rekstrarumhverfi leigubílstjóra til að þóknast einhverjum kontórista þar? Er það Sigurður Ingi Jóhannsson af því að hann vill þverskallast við í ljósi þess að hafa verið gerður afturreka jafn oft og raunin er? Er þetta eitthvert sjálfshjálparatriði hæstv. innviðaráðherra? Er þetta eitthvert sjálfshjálparatriði þingmanna Framsóknarflokksins í umhverfis- og samgöngunefnd eða er þetta hluti af einhverjum samkomulagspakka ríkisstjórnarflokkanna sem eru samsettir eins og þeir eru samsettir og allir þurfa að fá sitt nema Sjálfstæðisflokkurinn sem frestar sínum málum í formi útlendingafrumvarpsins í þessari umferðinni? Þetta er allt alveg óskiljanlegt. Það hefur enginn þingmaður stjórnarflokkanna mætt hér í þessa umræðu. Leigubifreiðastjórar hafa verið hér fyrir utan alla umræðuna, þeytandi flautur sínar framan af þangað til lögreglan bað þá vinsamlegast að hætta því og þeir urðu, verandi með kurteisustu mönnum og konum Íslands, auðvitað við því en héldu áfram hér fyrir utan. Það eru raunverulegir hagsmunir hér undir og mér þykir það alveg forkastanlegt að þingmenn stjórnarflokkanna, sem ætla að keyra þetta mál hér í gegn rétt fyrir þingfrestun fyrir jól, skuli ekki mæta til umræðunnar.

Ég vil að endingu hvetja þá þingmenn sem ætla sér að styðja þessa lagabreytingu til að taka undir þá tillögu sem Miðflokkurinn mun leggja fram við afgreiðslu málsins um að fresta gildistöku þannig að hægt verði að horfa til þeirra áhrifa og aðgerða og breytinga og ákvarðana sem Norðmenn ætla að taka og gera á sínu regluverki því að þar er raunverulega verið að skoða hvaða áhrif það hefur haft að gera hlutina á ákveðnum svæðum eins og hér er lagt til. Það er verið að gera þetta núna. Það er verið að skoða þetta. Við skulum bíða þangað til sú úttekt er um garð gengin. Við skulum ekki stefna heilli starfsstétt í hættu út af einhverri tilraunastarfsemi hæstv. innviðaráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar.