hækkun barnabóta.
Herra forseti. Ég fagna því tækifæri að ræða þær breytingar á barnabótakerfinu sem við í ríkisstjórninni höfum kynnt, ekki bara til að styðja við kjarasamninga heldur líka til að efla þetta mikilvæga kerfi. Eins og kom mjög skýrt fram þegar þessar aðgerðir voru kynntar og það hefur legið fyrir algerlega frá upphafi þá verður kostnaður við þessa kerfisbreytingu 5 milljörðum hærri á næstu tveimur árum en ella hefði orðið miðað við núverandi fjárhæðir og skerðingarmörk. Þetta kom skýrt fram við kynningu málsins, þ.e. að óbreyttu kerfi. Ég held að það sé mikilvægt að hv. þingmaður tali ekki um einhverjar blekkingar því að þetta hefur legið fyrir. Það sem er mikilvægt í þessari tillögu er að hún felur líka í sér kerfisbreytingu. Fjölskyldum sem njóta stuðnings í kerfinu fjölgar um 2.900, 2.000 vegna breytinganna í ársbyrjun 2023 og 900 vegna breytinganna í ársbyrjun 2024. Grunnfjárhæðir barnabóta með fyrsta barni hækka um 25% fyrir fólk í sambúð og um 11% fyrir einstæða foreldra. Á sama tíma erum við að fækka skerðingarmörkum. Þau verða eftir breytingu annars vegar eitt fyrir foreldra í sambúð og hins vegar fyrir einstæða foreldra og mörkin hækka fyrir foreldra í sambúð úr 9.098.000 kr. í 9.785.000 kr. en fyrir einstæða foreldra úr 4.549.000 kr. í 4.893.000 kr. Miðað við óbreyttar fjárhæðir og skerðingarmörk hefði kostnaður vegna barnabóta orðið um 12,1 milljarður kr. á árinu 2023 en í endurbættu kerfi er hann áætlaður um 14,6 milljarðar kr. og þar af eru 600 nýjar milljónir en annars erum við að ráðstafa þeim fjármunum sem fyrir eru. Þannig að hér er ekki um neinn blekkingaleik að ræða. Hér er hins vegar um að ræða kerfisbreytingu sem hefur verið kallað eftir, m.a. úr flokki hv. þingmanns, sem er að barnabótakerfið nái til fleiri fjölskyldna en áður.