153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

hækkun barnabóta.

[10:37]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Í 1. og 2. umr. fjárlaga var fjárheimildin fyrir næsta ár tæpir 14 milljarðar kr. Hvernig getur það verið aukning að fullnýta heimild sem hefur ekki breyst í allt haust? Ef hæstv. forsætisráðherra hefði mætt með frumvarp hér í haust og talað um að að öðru óbreyttu stæði til að henda 2.600 manns út úr barnabótakerfinu og hrósað sér svo fyrir að draga þá breytingu til baka þá held ég að framsetningin á þessu máli hefði hljómað aðeins öðruvísi. Það er ekki eðlilegt að stilla þessu svona upp. Ef það er yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar að nýta ekki fjárheimildir í barnabótakerfinu, heldur nýta sér skerðingarmörkin eins og þau eru, þá á fólk skilið að fá að vita það. Hvernig hefðu fyrstu umsagnir verkalýðshreyfingarinnar litið út í haust ef þessi óbreytta kerfisupphæð hefði verið lögð fram hérna í haust? Og ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Telur hún að verkalýðshreyfingin hafi skilið þetta með sama hætti og hæstv. ríkisstjórn, að það stæði ekki til að bæta neinni raunviðbót við kjarasamningana (Forseti hringir.) þegar kemur að barnabótum núna um áramótin?