153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

aðgerðir vegna hælisleitenda.

[10:42]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér er verið að ræða um málaflokk sem á sér margar hliðar. Núna fyrir þinginu erum við með frumvarp, sem haldið verður áfram að ræða í janúar, um breytingar á lögum á Íslandi sem snerta þennan málaflokk. Því er ætlað að tryggja betri árangur í samræmi við þau markmið sem við höfum sett okkur.

Varðandi alþjóðasamstarfið þá held ég að enginn ágreiningur sé um það, á milli þeirra ríkja sem eiga aðild að Dyflinnarsamkomulaginu, að kerfið sem þar var smíðað sé úrelt vegna þess að það tekur ekki tillit til þeirra aðstæðna sem hafa skapast frá því að það var smíðað. Að því leytinu til kemur ekki á óvart að forsætisráðherra Bretlands skuli lýsa því yfir. Hins vegar er ekki víst að það sé til nein jafn einföld lausn eins og þar er boðuð, sem gengur einfaldlega út á að ganga út úr samstarfinu. Í því sambandi getum við tekið dæmi: Eftir hvaða fyrirkomulagi ætla menn að eiga samskipti við önnur lönd um að taka við þeim sem á að vísa á brott? Það verður að vera til staðar eitthvert fyrirkomulag þannig að einhver sameiginlegur skilningur sé á því hvaða reglur eigi að gilda milli ríkja þegar flóttamenn eiga í hlut, fólk sem er að sækjast eftir hæli í viðkomandi heimshluta.

Grundvöllurinn að okkar kerfi á auðvitað að vera mannúð, að við rísum undir þeirri yfirlýsingu sem lög og stefna í málaflokknum gengur út á: Að sýna mannúð gagnvart þeim sem eru raunverulega á flótta frá hörmungum heima fyrir. Við viljum hafa fyrirkomulag til að taka umsóknir um hæli, þegar það á við, til efnismeðferðar og taka á móti því fólki eins og aðrir eru að gera. Vandinn er vegna allra þeirra sem raunverulega uppfylla ekki skilyrðin. Við höfum verið að gera okkur mjög erfitt fyrir hér heima með því að skapa alls konar kæruleiðir og höfum ekki byggt upp stjórnsýslu eða getu innan lands til að ljúka meðferð allra þeirra mála sem hafa komið inn í kerfinu okkar. Það hefur síðan aftur leitt til þess að þeir sem eiga í hlut hafa skotið rótum í landinu og það þykir vera orðið ómannúðlegt að vísa þeim brott loksins þegar efnisniðurstaða fæst. (Forseti hringir.) Við erum að setja aukna fjármuni í þetta, t.d. með betri fjármögnun lögreglunnar núna við 2. umr. fjárlaga og inn í önnur úrræði sem tengjast þessu beint. Þetta er því málaflokkur sem er í stöðugri skoðun.