aðgerðir vegna hælisleitenda.
Virðulegi forseti. Ég ætla bara að lýsa því yfir um þennan málaflokk, sem ég svo sem stjórna ekki, að ég held að við eigum að læra af góðum fordæmum frá vinaþjóðum okkar og nágrannaþjóðum. Ég held að til skamms tíma höfum við mikið verið að líta til Noregs og eflaust má finna góð dæmi frá Danmörku líka sem við ættum að líta til. Athugasemd mín varðandi Bretland er einfaldlega sú að það er erfitt að vera eyland þegar viðfangsefnið er alþjóðlegt, þ.e. þú getur ekki sett þínar eigin sérstöku reglur þegar það leiðir af eðli máls að þú þarft að eiga samskipti við aðrar þjóðir. Bretar hafa t.d. verið að fást við það sérstaklega hversu mikill þrýstingur kemur bara yfir Ermarsundið. Allir innviðir í Suður-Englandi eru algjörlega brostnir og geta stjórnvalda þar til að taka við þeim mikla fjölda er sprungin og veldur spennu og áhyggjum í breskum stjórnmálum. Ég skil vel að (Forseti hringir.) þar standi til að taka reglurnar til endurskoðunar en ég hef efasemdir um að það muni skila miklum árangri að einangra sig frá alþjóðasamskiptum í því.