153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

eingreiðsla til eldri borgara.

[10:47]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Flokkur fólksins lagði fram tillögu um að 360 millj. kr. yrði varið til þess að hjálpa 6.000 eldri borgurum svo þeir fengju nú 60.300 kr. skatta- og skerðingarlaust núna um jólin. Þetta er lægri upphæð en er verið að hækka til Ríkisútvarpsins og er sennilega nálægt því að vera helmingi lægri upphæð heldur en það sem er lagt til að borga til svokallaðra frjálsra fjölmiðla. Svo fundust 150 milljónir í skúffu til Kvikmyndasjóðs. Við vorum búin að skera niður tillöguna um eldra borgara niður í 2.000, sem hefði gert 120 milljónir, en það var ekki hægt að samþykkja það. Síðan fundust allt í einu 100 milljónir sem er hægt að setja í sjónvarpsstöð úti á landi sem útgerðarmenn eiga sem vaða í peningum og vita ekki aura sinna tal. Á sama tíma eru einstaklingar með 240.000 kr. útborgað að flýja húsnæði sitt sem þeir hafa ekki efni á að leigja lengur og eru komnir í hjólhýsagarð í Laugardalnum. Það er ekki nóg að viðkomandi sé refsað fyrir það að eiga ekki fjármuni til að standa undir leiguhúsnæðinu heldur á að refsa líka fyrir það að hún fari í hjólhýsagarð í Laugardalnum því þá fær hún ekki húsnæðisuppbót. Það þarf tvöfalda refsingu fyrir það að reyna að bjarga sér. Ég spyr því hæstv. fjármálaráðherra hvort honum finnist þetta eðlilegt og hvort honum finnist ekki að það ættu að vera til peningar fyrir þetta fólk vegna þess að hann var búinn að segja það einhvern tíma að hann ætlaði að sjá til þess að draga verulega úr skerðingum eldri borgara. Finnst honum að honum hafi tekist það?