eingreiðsla til eldri borgara.
Virðulegi forseti. Þetta var fróðleg upptalning á ýmsu sem hefur gerst hérna í þinginu og komið inn á mörg málefnasvið, fyrst og fremst inn á málefnasvið annarra ráðherra, en ég skal gera mitt besta til að bregðast við. Það var sagt að ég hefði einhvern tíma haldið því fram að það stæði til að draga úr skerðingum. Við getum bara byrjað árið 2013. Þá var þingstubbur þar eftir kosningarnar. Þá byrjuðum við og við breyttum skerðingarhlutföllum. Við hættum skerðingu á grunnlífeyrinum sem hafði verið skertur í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Við sameinuðum síðan á endanum bótaflokka og það er afskaplega auðvelt að fletta þessu öllu saman upp á vefnum tekjusagan.is og sjá hvernig kaupmáttur þessara hópa, eldri borgara, hefur stóraukist á því tímabili sem er verið að vísa til. Þannig að já, svarið er já, við drógum gríðarlega úr skerðingunum. En við gerðum meira en það. Við sameinuðum bótaflokka og við hækkuðum framlögin. Þannig eru heildarframlögin inn í ellilífeyri almannatrygginga núna yfir 100 milljarðar en voru rétt um 40 milljarðar árið 2013 þegar ég kom í fjármálaráðuneytið á verðlagi þess tíma. Aukningin er gríðarleg og við sjáum það á tekjusagan.is að jafnvel þótt fólk sé með mun betri réttindi í lífeyriskerfunum okkar, er sem sagt að fá meira útborgað sem lífeyrisréttindi á efri árum, þá eru bæturnar samt miklu hærri. Hvernig getur það gerst öðruvísi en að við höfum hækkað bótaréttindin og dregið úr skerðingum? Ella hefði þetta ekki getað gerst. Þetta er að gerast hjá öllum tekjutíundum eldri borgara. Þannig að svarið er já. Við stóðum við það sem við sögðumst ætla að gera.