eingreiðsla til eldri borgara.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Samkvæmt heimasíðu TR er 286.000 kr. lægsti lífeyrinn. Sumir eru með 10% minna, sem verða fyrir búsetuskerðingum og krónu á móti krónu skerðingum og eru að reyna að lifa af 240.000 kr. á mánuði. Nú hefur verið fullyrt hér í þessum ræðustól að stór hópur, flestir ellilífeyrisþegar, fái jóla- og orlofsbónus, sérstaklega jólabónus var talað um núna. Orlofs- og jólabónusinn er 104.000 kr. En vill hæstv. fjármálaráðherra skýra út fyrir mér hvers vegna í ósköpunum hann er skertur alveg niður í 0 hjá stórum hópi þessa fólks og sumir fá bara smá af þessu, aðrir ekki? Hvers vegna í ósköpunum getið þið ekki einu sinni leyft þessum hópi að fá skerðingarlausan orlofs- og jólabónus?