breytingar á barnabótakerfinu.
Forseti. Áfram með barnabæturnar. Í vikunni kynnti hæstv. forsætisráðherra aðgerðir ríkisstjórnar vegna kjarasamninga og þar á meðal voru breytingar á barnabótakerfinu. Hér þarf að hafa í huga að ef barnabótakerfið er ekki uppfært árlega þá úreldist það, færri og færri eiga þá rétt á barnabótum á hverju ári ef ekkert er gert til að uppfæra kerfið. Breytingarnar sem nú er verið að gera, gera það vissulega að verkum að rúmlega 2.900 fleiri fjölskyldur bætast við miðað við árið 2022, sem er rétt rúmlega 9% aukning. Það segir þó ekki alla söguna því alveg er hægt að greiða fleira fólki lægri bætur. Það er ekkert mál að fjölga fólki sem fær bætur en það er erfiðara að halda í verðmæti barnabótanna. Ef við skoðum heildarverðmæti barnabóta þá er gert ráð fyrir 14,6 milljörðum í barnabætur á næsta ári og 15,9 milljörðum árið 2024. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2021 var hins vegar búið að lofa því að verðlagsuppfærðar barnabætur yrðu rétt tæplega 16 milljarðar árið 2023, ekki 14,6 milljarðar heldur rétt tæplega 16 milljarðar. Því lítur út fyrir að ekki sé verið að standa við fyrri loforð um verðmæti, að barnabótakerfið hafi fengið að rýrna og nú sé verið að kalla þessa lagfæringu hækkun, sem nær ekki einu sinni að halda í við verðlagsþróun. Mig langar því að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort sé heiðarlegri og nákvæmari framsetning á þessari kerfisbreytingu barnabóta, að verið sé að hækka barnabætur um 5 milljarða eða hvort tæplega sé verið að standa við fyrri loforð? Hvort tveggja er rétt. Tæknilega séð er verið að bæta við 5 milljörðum í viðbót út af kerfisbreytingu, en það er líka rétt að loforð um fjármagn var þegar til staðar. Hvor framsetningin er nákvæmari? Hvor framsetningin er heiðarlegri?