breytingar á barnabótakerfinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta mál upp. Það er í raun og veru sérstök ákvörðun á hverju ári hvort skerðingarmörk barnabótakerfisins séu uppfærð. Við höfum dæmi um það frá fyrri árum þar sem þessi mörk voru ekki uppfærð og þá hefði staðan orðið sú, eins og hv. þingmaður benti réttilega á, að í raun og veru hefði fækkað í hópi þeirra sem ættu rétt á barnabótum, raunar úr 31.296 fjölskyldum í 28.647 fjölskyldur samkvæmt útreikningum fjármálaráðuneytis. Sú breyting sem hér var kynnt gerir það að verkum að þessum fjölskyldum fækkar ekki og raunar fjölgar þeim, fjölgar um 2.000 fyrir árið 2023.
Hv. þingmaður segir að hér sé þá verið að dreifa fjármunum víðar. Það er rétt. Við erum að taka fyrsta skrefið í því að þetta kerfi nái til fleiri fjölskyldna. Það hefur verið umræðan hér á Alþingi undanfarin ár. Ég man nú ekki nákvæmlega hvað flokkur hv. þingmanns hefur sagt um þetta en ég veit það að margir flokkar hér á þingi hafa kallað eftir því að við þróum þetta kerfi áfram þannig að það nái til fleiri fjölskyldna, ekki eingöngu til þeirra tekjulægstu. Staðreyndir málsins eru þær að við erum hér að hækka fjárhæðir barnabóta. Við erum að einfalda kerfið. Við erum að ráðast í kerfisbreytingu sem gerir það að verkum að fleiri fjölskyldur njóta þessa kerfis og við ætlum að halda því áfram á árinu 2024. Það eru stóru tíðindin í þessu. Já, það er verið að ráðstafa 5 milljörðum meira en í óbreyttu kerfi. Það er hægt að rífast hér lengi um það hvort þeir fjármunir eru nýir eða ekki, en það hefur algjörlega legið fyrir að hluti af þessum fjármunum er inni í kerfinu og hluti af þeim kemur nýr inn og það hefur legið algerlega skýrt fyrir frá upphafi. Mér finnst stóra málið í þessu vera kerfisbreytingin sem ég hef lesið þennan sal sem svo að sé ríkur vilji til að ráðast í.