breytingar á barnabótakerfinu.
Frú forseti. Ég er að spyrja um loforð um verðmæti. Í fjárlögum árið 2021 var loforðið um verðmæti tæpir 14 milljarðar, að núvirði eru það tæpir 16 milljarðar. Það er verðmætið sem er í barnabótum. Það sem forsætisráðherra er að gera hérna er í rauninni bara eins og að hún sé að stela jólagjöfinni sem hún gaf þjóðinni í fyrra, pakka henni einhvern veginn inn aftur og setja aftur undir jólatréð. Tæknilega séð er það jólagjöf en það er bara ekki ný jólagjöf. Þetta er jólagjöf sem var búið að gefa áður. Það er alveg hægt að taka snúning á slíkri gjöf og einhverjir ímyndarlæknar eru rosalega góðir í að sannfæra fólk um að tæknilega séð sé þetta ný gjöf því að ef henni hefði ekki verið pakkað inn í nýjan pappír þá hefði hún bara gleymst inni í geymslu hvort eð er. En staðreyndin er sú að það var búið að lofa þessari upphæð í barnabætur, óháð því hvernig kerfið yrði undir, hversu margir eða fáir fengju þá hærri eða lægri upphæð eða hvað sem er. Ég er að spyrja um loforð um fyrra verðmæti sem er núna tæplega verið að standa við. (Forseti hringir.) Er rétt að kalla þetta hækkun eða er rétt að kalla þetta leiðréttingu? Hvort er heiðarlegra í framsetningu?