breytingar á barnabótakerfinu.
Herra forseti. Mér finnst þetta bara algjörlega skýrt. Það er ákvörðun á hverju ári hvort og hvernig þessi skerðingarmörk eru uppfærð. Það hefur ekki alltaf verið gert þannig að á bak við það er pólitísk ákvörðun. Þegar við skoðum niðurstöður af því sem hér hefur verið kynnt þá hækka grunnfjárhæðir barnabóta með fyrsta barni um 25% fyrir fólk í sambúð (Gripið fram í.) og 11% fyrir einstæða foreldra. Þetta eru tölurnar. Á sama tíma erum við að einfalda kerfið sem er búið að kalla eftir. Við erum að taka upp samtímagreiðslur. Við erum að fækka skerðingarmörkunum. Við erum að draga úr jaðarskattsáhrifunum og þegar þetta spilar saman … (Gripið fram í.) — Nei, hv. þingmaður spyr um heiðarlega framsetningu. Þá skal ég segja honum hvað er heiðarleg framsetning. Það er að taka þessar breytingar og bera þær saman við þær breytingar sem við erum að gera á húsnæðisstuðningi, áhrif skattbreytinga sem við gerðum á árunum 2020–2021. Þá sést nákvæmlega hvert þessi ríkisstjórn er að fara. Hún er að styðja betur við fólkið í landinu, bæði tekjulægstu hópana og millitekjuhópana að þessu sinni. Það er hin heiðarlega framsetning þessa máls, herra forseti. (Gripið fram í.)